Láttu drauma þína rætast
Allir vilja láta drauma sína rætast. Ég, þú Kristmundur Axel og unglingsstúlkur. Það er samt ekki víst að við höfum öll sömu draumana. Mig dreymir um Evrópuferðalög á húsbíl, djamm á Ibiza og epíska tónleika með krökkunum sem ég kenni tónmennt. Þig dreymir eflaust eitthvað frábært.
Kristmundur Axel og unglingsstelpurnar eiga sér einhverja drauma sameiginlega, til dæmis um frama í tónlist, og einmitt á þeim nótum er söngkeppni sem hann stendur nú fyrir. Keppnin nefnist „Láttu drauma þína rætast“ og er fyrir 13 til 16 ára. Ég hef skoðað auglýsingarnar fyrir þessa keppni og þar finnst mér ýmislegt áhugavert. Fyrir það fyrsta er ekkert „show“ í kringum þessa keppni. Engir áhorfendur og engin umfjöllun. Keppendur hrúguðust til Reykjavíkur um helgina þar sem þeir sungu fyrir hinn 17 ára Kristmund Axel og einhverja félaga hans. Úr þessum hópi völdu þeir 10 krakka sem fá að halda áfram í næstu umferð. Hluti af þessu ferli er meðal annars að fara út að borða með Kristmundi og að fara saman í bíó. Til að kynnast, sko. Svo verða frekari úrtökur og á endanum standa eftir einhverjir 2 sem fá þann heiður að Kristmundur Axel tekur þá upp á arma sína og kemur þeim á framfæri í bransanum.
Ég vil að sjálfsögðu ekki gera lítið úr þeim bransatengingum sem „one-hit-wonder“ úr framhaldsskólasöngkeppni hefur, en ég hef ákveðnar efasemdir um þau framaspor sem þarna verða tekin.
Svo er líka spurning hver ætlar að láta drauma rætast með þessari keppni…