Enginn greip Coolio
Árið 2009 var Coolio að skemmta á menntaskólaskemmtun í Bretlandi og ákvað að kasta sér af sviðinu og í faðm áhorfenda, svokallað crowd surf. Það hefði eflaust verið frábært ef einhver hefði gripið hann. Hann lenti flatur á gólfinu og til að bæta gráu ofan á svart gerðu nærstaddir nemendur að honum aðsúg og rændu hann bæði fötum og skartgripum. Þegar öryggisvörður hafði hjálpað honum aftur upp á svið tókst honum að fá skóna sína aftur en það var allt og sumt.
Svekkjandi…