Bloggþjófnaður!

október 26, 2007 at 2:24 pm (Netrusl)

Ég var að sjá svolítið alveg hreint stórundarlegt á öldum internetsins. Nokkrir íslenskir bloggarar reyta hár sitt af reiði yfir bloggara sem þeir saka um að ræna færslum sínum.

Hún kallar sig Fossvogskonuna, en áður en við veltum fyrir okkur hver þessi dularfulli þjófur er skulum við líta á nokkur dæmi. Á bloggsíðuna njerdie.blogspot.com er færsla dagsett 25. október 2007. Hún hefst svona:

Dagurinn byrjaði á því að ég vaknaði mygluð as hell og dröslaðist í skólann kl. 7:30 til að sleppa við umferðina, eins og ég geri alltaf, sat síðan inn í bíl og hlustaði á mína tónlist þar til setlagafræðin byrjaði… náði á einhvern undraverðan hátt að halda mér vakandi. Þegar tímanum lauk fórum við að gera steindafræðiverkefnið og síðan var farið í storkubergstímann. Þegar ég var búin að koma mér fyrir í sætinu með tölvuna mína fyrir framan mig fékk ég sms….

Sama dag birtist færsla á síðu Fossvogskonunnar. Hún byrjar ekki á sömu orðum en einhverra hluta vegna eru lokaorð færslunnar líka í byrjun hennar. Ég veit ekki hvort þarna er einhver ljóðræna á ferð eða bara vankunnátta á copy/paste aðgerðirnar. En eftir tvíteknu lokaorðin stendur:

Dagurinn byrjaði á því að ég vaknaði mygluð as hell. Þegar ég var komin á fætur með tölvuna mína fyrir framan mig fékk ég sms….

Tilvijun? Kannski. Ótalmargar manneskjur um allt land vakna myglaðar “as hell” og kannski vildi svo til að báðir þessir bloggarar lentu í því sama dag. …og fengu sms stuttu eftir að þær fóru í tölvuna. Við lifum jú á upplýsingaöld, þannig að þetta er ekki svo ólíklegt.

En báðar færslurnar segja frá því að sms-ið kallaði þær á slysstað þar sem Anna Lilja, sem virðist vera vinkona þeirra beggja, hefur lent í bílslysi. Textinn þar sem þær lýsa atburðarásinni er sláandi líkur, en hvað er svo óeðlilegt við það ef fjallað er um sama atburð? Kannski mættu þær báðar á slysstað. Maður veit ekki… Já, og svo fóru þær báðar í klifur seinna um daginn. Og horfðu á klifurmynd á vídjói um kvöldið. Og gerðu jafn margar upplyftur síðastliðinn sunnudag.

Þetta þarf ekki að vera svo grunsamlegt, er það nokkuð? Skoðum samt fleiri dæmi… Hér að neðan fara bara brot úr nokkrum færslum. Tengt er í færslurnar fyrir þá sem vilja lesa þær í heild.

Miss Big bloggar í vonleysistón 21. október sl:

Hér á bæ hefur ríkt ákveðið vonleysi út í allt og alla. Mataræðið þar af leiðandi ekki í góðum gír þó að síðasta vika hafi verið með besta móti. Ég er s.s að ná mér upp enn einusinni. Skil ekki afhverju ég dett alltaf í þessar holur, spuring um að láta ath. sjónina.

Sama dag bloggar Fossvogskonan:

Hér á bæ hefur ríkt ákveðið vonleysi út í allt og alla. Ég er samt að ná mér upp enn einusinni. Skil ekki afhverju ég dett alltaf í þessar holur, spuring um að láta ath. sjónina.

Mariamey skrifar um Airwaves 22. okt:

Þetta lag kom og ég gjörsamlega fékk tár í augun .. ég hlustaði svo mikið á þetta lag í fyrra á vissum tímapunkti þar sem mér leið ekkert of vel.. en samt vakti það mig upp og ég hugsaði bara hvað ég hef það gott í dag.. jú vissulega er ég undir mikilli pressu varðandi lokaverkefnið mitt og vinnu eftir áramót.. en samt hef ég það svo gott í dag.

Sama dag bloggar Fossvogskonan:

Þetta lag kom og ég gjörsamlega fékk tár í augun .. ég hlustaði svo mikið á þetta lag í fyrra á vissum tímapunkti þar sem mér leið ekkert of vel.. en samt vakti það mig upp og ég hugsaði bara hvað ég hef það gott í dag.. jú vissulega er ég undir mikilli pressu .. en samt hef ég það svo gott í dag.

Verðandifit berst við aukakílóin og tjáir sig um það 25. október:

Ég vóg 93 kg í morgun. Ég þarf þá að missa 2,8 kg í hverjum mánuði til að ná niður í kjörþyngd fyrir afmælið mitt sem er eftir 10 mánuði. Markmið mitt fyrir 25.nóvember er því 90,2 kg. (Veit reyndar að ég massa það og gott betur en það :D ).

Sama dag bloggar Fossvogskonan:

Ég þarf að missa 2,8 kg í hverjum mánuði til að ná niður í kjörþyngd fyrir afmælið. (Veit reyndar að ég massa það og gott betur en það :D ).

Þetta er alveg stórmerkilegt. Það sem þessar færslur eiga sameiginlegt er að úr þeim er búið að taka persónueinkennandi hlutana þegar þær birtast hjá Fossvogskonunni, svo sem afmælisdagsetningu, lokaverkefni og skólatíma. Ein færslan fannst mér sérstaklega áhugaverð. Þar segir hún frá pólverjum sem hún sá úti á plani hjá sér:

Jæja, kominn tími á smá færslu, enda er þessi saga sem ég ætla að segja hér á eftir svo kostuleg að ég get ekki sleppt því að blogga um hana.

Núna í morgun þegar ég vaknaði fór ég aðeins í tölvuna til að athuga með póst og aðrar fréttir rétt eins og ég geri vanalega. Þá tók ég eftir því að það voru staddir nokkrir pólverjar á planinu fyrir utan. Ég pældi ekkert í því fyrst hvað þeir voru að vesinast en eftir dálitla stund byrjaði snúningshraði vélarinnar á bílnum sem þeir voru á (grænn Kia pallbíll) að hækka allverulega.
Ég kíkti útí glugga og þar voru 2 eða 3 pólverjar að klóra sér í hausnum og veltu því fyrir sér hvað væri að bílnum.
Ég hefði átt að taka fram myndavélina og búa til smá myndband úr þessu en ég áttaði mig ekki á því fyrr en það var of seint.

Ég las þessa sögu á blogginu hennar áður en ég áttaði mig á því að það væri meira og minna allt stolið. Ég starði á færsluna eftir lesturinn og hugsaði: “Hvað í…? Hvers konar færsla er það eiginlega sem leggur upp með að kostuleg saga sé í vændum og svíkur mann svo með svona söguvanskapnaði sem ekkert vit er í?” Þarna var ekki neitt sem kemst nærri því að sagan sé kostuleg. En ég varð samt ekki svo hissa, því í ljósi þess að flestum færslum fylgir sú ógeðfellda tegund hreyfimynda sem aðeins 10 ára stelpur og barnalandskerlingar nota (þið vitið hvað ég meina, þessar með glimmeri, dansandi gamalmennum og öðrum hálfvitaskap), þá ályktaði ég að bloggarinn væri annað af þessu tvennu, en báðir þjóðfélagshópar eiga það sameiginlegt að vera óþroskaðir í flesta staði og þá er húmorinn varla betri.

Svo fann ég söguna á öðru bloggi og þar er hún strax skemmtilegri. Ekki svo góð að ég hafi slegið mér á lær, en samt betri:

Jæja, kominn tími á smá færslu, enda er þessi saga sem ég ætla að segja hér á eftir svo kostuleg að ég get ekki sleppt því að blogga um hana.

Núna í morgun þegar ég vaknaði til að fara í vinnu fór ég aðeins í tölvuna til að athuga með póst og aðrar fréttir rétt eins og ég geri vanalega. Þá tók ég eftir því að það voru staddir nokkrir pólverjar á vegum Nesbyggðar á planinu fyrir utan. Ég pældi ekkert í því fyrst hvað þeir voru að vesinast en eftir dálitla stund byrjaði snúningshraði vélarinnar á bílnum sem þeir voru á (grænn Kia pallbíll) að hækka allverulega.

Ég kíkti útí glugga og þar voru 2 eða 3 pólverjar að klóra sér í hausnum og veltu því fyrir sér hvað væri að bílnum. Hann var greinilega fastur í botni og þeir tóku á það ráð að reyna að taka rafgeyminn úr sambandi. Hægt og rólega hækkaði snúningshraði bílsins og á endanum var hann orðinn ótrúlega mikill með tilheyrandi hávaða og látum. Þeir tóku allir á sprett því það var eins og bíllinn ætlaði gjörsamlega að springa. Eins og við var að búast þá hægði vélin fljótlega á sér sjálf, mig grunar nú að hún hafi ofhitnað eða hreinlega brætt úr sér.

Nóg um það. Áhugasamir um fleiri þjófnaði hennar geta bara tekið Google í sína þjónustu og skemmt sér.Hún virðist frekar eyða tíma í að afrita færslur annarra og klippa þær til heldur en að skrifa bara um eigið líf. Hversu leiðinlegt getur líf einnar manneskju verið svo hún finnur sig knúna til að þykjast lifa lífi annarra?

Hver er Fossvogskonan? Ég fann bloggið sem hún notaði áður en hún opnaði síðu á blogspot.com. Það er á blog.central.is/fossvogskonan og því bloggi virðist hún hafa haldið úti áður en raunveruleikarofið átti sér stað. Þar er að finna sögur sem virðast sannar reynslusögur úr hennar heimi, a.m.k. er ákveðin samfella milli færslna og myndir af raunverulegu fólki en ekki glitviðbjóði.

Hvers vegna hún gerir þetta er mér hulin ráðgáta. En áhugavert er það.

UPPFÆRT: Eldra bloggið hennar, það sem er á blog.central.is/fossvogskonan, er líka vettvangur glæps. Þessi færsla er beint afrit af þessari færslu, svo dæmi sé tekið. Takk, Marín Ósk fyrir að benda á þetta. :)

ENN UPPFÆRT: Fossvogskonan virðist vita upp á sig sökina og hefur nú lokað læst báðum síðunum sínum.

ENN EINU SINNI UPPFÆRT: Fossvogskonan hefur fært bloggsíðuna sína á katarina-me.blogspot.com og hefur fært sig upp á skaftið, því nú afritar hún af fréttasíðum. :)

Ég var að sjá á annarri síðu hvar Fossvogskonan tjáir sig um ósmekklegar færslur í kommentakerfinu hennar. Mér þykir það leitt. Tilgangur þessarar færslu er alls ekki sá að smala saman fólki til að kasta skít í þessa mjög svo athyglisverðu konu, heldur er ég aðeins að velta mér upp úr furðum Internetsins og tilganginum með svona athæfi. Við skulum ekki vera vond við náungann.
Fólk ber engu að síður fulla ábyrgð á því sem það skrifar á Internetið, bæði þeir sem finna sig knúna til að kasta skít og einnig hún, sem ergir fólk með því að gera þeirra skrif að sínum eigin. Afleiðingarnar af hvoru tveggja ættu að vera fólki ljósar.

25 Ummæli

  1. Hannes sagði,

    Já, ég lenti líka í þessu.

    Mín færsla

    Fossvogskonan degi síðar… – mér finnst ég kannast eitthvað við textann ;)

    Síðan er eins og hún endi allar færslur á einhverju sem hún skrifar sjálf (eða kóperar frá öðru bloggi, maður veit ekki).

    Þetta er mjög skrítið.

  2. Marín Ósk sagði,

    Höfundur nýjasta stolna bloggsins hérna. Glöggir lesendur tóku kannski eftir því að í færslunni (minni) er ég að blogga kl. 22:27 þann 25. október og nefni þar að ég hafi farið í klifur kl. 18 og að ég hafði horft á klifurmynd kl. 20…

    Fossvogskonan setur færsluna (stolnu) á síðuna sína kl. 4:28 PM (sem er auðvitað kl. 16:28).

    Fór hún í klifur kl. 18 og horfði á klifurmynd k. 20 … og sagði frá því nokkrum tímum áður? Yfirnáttúrulegt…. eða bara að hún er ekki stillt á GMT.

    Ég gúgglaði allar færslurnar og já, þær eru allar copy/paste með smá kynjafiffi og viðbætingum.

    Já, ég skil ekki hví hún er að þessu… það er mér hulin ráðgáta.

  3. Marín Ósk sagði,

    http://www.blog.central.is/fossvogskonan er eitthvað stolið líka :D

  4. Heiða sagði,

    Þetta er ástæðan fyrir því að maður læsir síðunum sínum, því það er aldrei að vita hvaða vitleysingar eru þarna úti að herma eftir manni.
    Það er augljóst að þessi manneskja er annað hvort mjög svo einmanna eða hreinlega eitthvað stærra að henni, t.d. þroskaheft eða annað.
    Er með svipaðri stelpu í tíma, gerir ekki annað en að líta á svörin hjá manni og hún fer als ekki leynt með það! Ömurlegt, en jafnframt skemmtilegt að fylgjast með svona fólki :) Gefur manni eitthvað til að tala um.

  5. Marín Ósk sagði,

    Ég vil nú bara alls ekkert læsa síðunni minni… hef þar að auki lent í smá veseni með að komast inn á læstar síður þrátt fyrir að vera með rétt lykilorð.

  6. lilja sagði,

    Jú jú hún stal einmitt færslu frá mér líka. Þar sem hún talar um pólverja & fl. þá hefst mitt blogg á já anyways…. bara nöfnum breytt. Grey kellan er eitthvað sorgleg. Nema þetta sé karlmaður að rugla eitthvað….

  7. Marín Ósk sagði,

    Þær eru ekki lokaðar, bara báðar læstar! :D

  8. DrumaTix sagði,

    Bah, meinti það. :p

  9. Huldar sagði,

    Það gerist samt ekkert hræðilegt þó einhver ,,hermi” eftir manni í bloggfærslu, ég tek undir það að þetta er stórfurðulegt hjá henni en ég held að maður ætti að hafa gaman að svona skrítnu fólki-love it!

  10. DrumaTix sagði,

    Já, það er svona fólk sem fær mann til að brosa að lífinu. ;)

  11. Ritstuldur! Fossvogskonan svífst einskis… » I am official station sagði,

    [...] þetta blogg (áður en ég fattaði að fossvogskonan hafði stolið frá mér líka). Síðan er DrumaTix búinn að finna fleiri síður sem hafa lent í þessu. Eitt sem ég tók eftir – fórnarlömbin eiga eitt sameiginlegt, þau nota [...]

  12. Barði sagði,

    Hverjum er ekki drullu sama þótt sé verið að stela bloggtexta?? Ekkert er heilagt, sérstaklega ekki á Internetinu.

    Mér finnst þetta frekar skondið að því leytinu til að fólk sé að velta sér uppúr léttvægu djóki eins og þessu.

  13. Elliði sagði,

    Jáá, er ekki frekar gróft að saka hana um ritstuld?
    Það er ekki eins og þið séuð að skrifa doktorsritgerðir á bloggin hjá ykkur.
    Og að tala um að hún sé þroskaheft er náttúrulega bara mjög skrítið.
    Við vitum ekkert hvort að þetta sé grín eða hvort að hún sé veik á geði. Það gæti vel verið að þetta sé bara partur af miklu stærra vandamáli.

  14. DrumaTix sagði,

    Tja… kommentið með þroskahömlunarpælingunni er reyndar ekki svo hvasst, finnst mér. Það er bara verið að velta upp þeim möguleika að hún sé þroskaheft, en það er eðlilegt hugsanaferli þegar fólk stendur frammi fyrir svona furðulegheitum. :)

    Svo er orðið “ritstuldur” bara eins alvarlegt og þú vilt að það sé. Fossvogskonan sá ritað mál – og stal því. Semsagt, ritstuldur. :) Ef þetta væri bók eða doktorsritgerð væri þetta alvarlegt mál, en þetta er blogg og þá er hjákátlegt kannski heppilegra orð.

  15. maja sagði,

    Ég tek þessu sem hrósi bara.. að hún hafi stolið frá mér.. augljóslega mikill snillingur hér á ferð.. ehh já :D

  16. Hannes sagði,

    Fossvogskonan er komin með nýtt blogg:
    http://katarina-me.blogspot.com/
    Allar færslurnar sem voru á hinu blogginu eru þarna…

  17. DrumaTix sagði,

    Jahérnahérnahér!

  18. Geiri sagði,

    “og hefur fært sig upp á skaftið, því nú afritar hún af fréttasíðum. :)

    er hún ekki bara að blogga um fréttir eins og svo ótal margir aðrir gera, eða þarf fólk helst að vera snobb lið á Moggabloggi til að mega það.

  19. DrumaTix sagði,

    Ja, það er alveg spurning sem vert er að bera upp.
    Í raun er lítill munur á því að gera copy/paste af fréttasíðu án þess að tjá sig nokkuð um fréttina og því að ýta á “blogga um frétt” á mbl.is og draga svo 2 setningar út úr afturendanum á sér um varla neitt.
    Þannig að hún er kannski að söðla um. ;)

  20. Kristjan sagði,

    Skemmtilegt ad heyra hva tarf litid til ad pirra folk :)
    Enn adalastaedan fyrir minu innliti her og commenti er ad mer synist flestir stela hofundaretti af ljosmyndum. T.d EIGANDINN ad tessu bloggi. Finnst ykkur i lagi ad nota ljosmyndir a sidurnar ykkar an tess ad fa leyfi ne greida fyrir notkun???
    kv Kristjan

  21. DrumaTix sagði,

    Aftur komin góð og verð spurning.

    Mitt svar er að hér er ekki verið að ræða um höfundarréttarvarið efni, heldur manneskju sem eignar sér líf og atburði annars fólks. Það er svolítið annað mál en að notfæra sér myndir annarra, þó hið síðarnefnda sé vissulega siðferðilegt álitamál.

  22. Kristjan sagði,

    Sæll, get audvitad verid sammala tvi, frekar undarlegt.
    Enn tar hittir tu naglan a hofudid :)
    Tegar einstaklingur tekur mynd t.d af minni heimasidu, hun gæti verid af fjolskyldu minni, bornunum minum eda hverju sem er. Vidkomani notar myndina t.d a sinu bloggi og getur sett hvada texta sem er vid hana gert i raun hvad sem er an tess ad spyrja nokkurn mann. Finnt tetta i raun ekkert annad en stuldur. Engin greidsla ne heimild til notkunar.
    Godar stundir.

  23. DrumaTix sagði,

    Jamm, það er ákveðinn munur á því að taka mynd af fjölskyldunni þinni og skrifa við hana “ég og Sissi í góðum fílíng við grillið” eða einhvern skrattann en að myndskreyta með einhverri mynd án þess að þykjast eiga hana.

  24. hildigunnur sagði,

    Vinur minn lenti einu sinni í þessu, mynd af dóttur hans var tekin af netinu og einhver sjúk kona úti í bæ sagði þetta vera sína dóttur. Það er frekar óhugnanlegt.

  25. Kristín sagði,

    Andskotinn, ég missti af öllu actioninu! :D

Rita ummæli